Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 28. ágúst 2026
1. Hver ber ábyrgð á vinnslunni?
Burtu ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem safnast í gegnum þessa vefsíðu og Burtu farsímaappið (iOS og Android). Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á hallo@burtu.is.
2. Hvaða upplýsingum söfnum við?
- Notandaaðgangur í appinu: netfang (til staðfestingar með einnota kóða sendum í tölvupósti).
- Símanúmer (valfrjálst): ef þú tengir símanúmer til að fá tilboð með SMS, staðfest með einnota kóða.
- Efni þitt í appinu: vistuð tilboð, ferðavaktir (svæði, hámarksverð, tímabil, tegundir ferða) og fjöldi farþega sem þú velur — allt tengt notandaaðgangi þínum.
- Ýtitilkynningar (valfrjálst): tæknilegt tilkynningatóken frá Apple/Google til að senda þér tilkynningu þegar tilboð passar við ferðavakt þína. Þú getur slökkt á þessu hvenær sem er í stillingum símans eða appsins.
- Villuskýrslur (valfrjálst, aðeins í appinu): ef appið hrynur söfnum við nafnlausum tæknilegum upplýsingum (tegund tækis, stýrikerfisútgáfa, villuboð/stafla) til að leysa vandamál hraðar. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru sendar með.
- Biðlisti neytenda á vefnum: netfang, fornafn (valfrjálst), tungumál, samþykki og tímasetning þess.
- Biðlisti fyrirtækja: nafn fyrirtækis, tengiliður, vinnunetfang, símanúmer, tegund fyrirtækis, vefsíða og lýsing á þörf.
- Markaðsuppruni (UTM): hvaðan heimsóknin kom, ef við á.
3. Í hvaða tilgangi?
Upplýsingarnar eru notaðar til að láta þig skrá þig inn og halda utan um vistuð tilboð og ferðavaktir þínar, senda tilkynningar um tilboð sem passa við óskir þínar (ef þú samþykkir það), leysa villur í appinu, meta umsóknir fyrirtækja um snemmbúinn aðgang og þróa þjónustuna.
4. Lagagrundvöllur
Vinnsla byggir á samningi (aðgangur þinn og notkun appsins), samþykki þínu (t.d. fyrir ýtitilkynningum og markaðspósti) og lögmætum hagsmunum við að tryggja rekstraröryggi þjónustunnar (t.d. villuskýrslur). Þú getur afturkallað samþykki hvenær sem er.
5. Hýsing og vinnsluaðilar
Gögn eru geymd hjá Supabase (gagnagrunnur og innskráning) og vefurinn/API er hýst hjá Vercel. Innskráningarkóðar og staðfestingarpóstar eru sendir í gegnum SMTP2GO, og SMS-kóðar í gegnum SMS-þjónustuaðila okkar. Ýtitilkynningar fara í gegnum tilkynningaþjónustur Apple og Google. Villuskýrslur eru unnar hjá Sentry. Þessir aðilar vinna gögn samkvæmt okkar fyrirmælum.
6. Varðveisla og eyðing
Gögn tengd notandaaðgangi (vistuð tilboð, ferðavaktir, tilkynningatóken) eru geymd meðan aðgangur þinn er virkur. Þú getur beðið um eyðingu aðgangsins og allra tengdra gagna hvenær sem er með því að hafa samband. Biðlistagögnum er eytt eða þau gerð ópersónugreinanleg þegar þau eru ekki lengur nauðsynleg í ofangreindum tilgangi.
7. Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að eigin gögnum, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu og flutningi gagna. Þú getur einnig beint kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).